„Ljóst er að síðasta orðið hefur ekki verið sagt“ mælti Ragnar Kjartansson, fyrrverandi stjórnarformaður Hafskips, að gengnum dómi Hæstaréttar í Hafskipsmálinu 1991 en félagið var neytt í gjaldþrot í desember 1985. Í aðdraganda þess varð til mikið gjörningaveður þar sem fjölmiðlar og stjórnmálamenn léku stórt hlutverk. Síðustu vikurnar fyrir náðarhöggið sem Hafskipi var reitt hönnuðu skiptastjórar á vegum borgarfógetaembættisins, ríkislögmaður og seðlabankastjóri ásamt forráðamönnum Eimskipafélags Íslands atburðarás sem færði Eimskip eignir og viðskipti Hafskips á silfurfati. Í kjölfar gjaldþrotsins héldu skiptaráðendur áfram vinnu sinni við þrotabúið og efndu á eigin spýtur og án lagaheimilda til sjálfstæðrar rannsóknar í leit að hugsanlegu saknæmu athæfi forráðamanna Hafskips.
Með nýjum gögnum sem einkum hefur verið aflað af Birni Jóni Bragasyni sagnfræðingi og gerð er grein fyrir í bók hans Hafskip í skotlínu er ljósi varpað á margendurtekin lögbrot opinberra aðila í aðdraganda og eftirmálum gjaldþrotsins. Sú vinna er grundvöllur kröfu um opinbera rannsókn sem Ragnar Aðalsteinsson hrl. og Sigríður Rut Júlíusdóttir hrl. hafa lagt fram fyrir hönd fyrrverandi forráðamanna Hafskips og þolenda í þeim órétti sem beitt var. Þeir eru Björgólfur Guðmundsson, forstjóri Hafskips, Helga Thomsen, ekkja Ragnars Kjartanssonar stjórnarformanns félagsins, Páll Bragi Kristjónsson, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Hafskips, Þórður H. Hilmarsson forstöðumaður skipulags- og hagdeildar og Helgi Magnússon, löggiltur endurskoðandi Hafskips.
Undirbúningur þess að Hafskipsmálið yrði tekið til umfjöllunar á nýjan leik hefur í raun staðið með hléum frá því dómur Hæstaréttar gekk árið 1991. Þáttur Ragnars Kjartansson í þeim efnum er afar stór en hann hélt uppi þróttmikilli málsvörn sinni og greiningarvinnu bæði fyrir og eftir þá dóma sem felldir voru. Á síðustu árum, eftir að Ragnar veiktist alvarlega árið 1996, hafa hinir Hafskipsmennirnir tekið við keflinu.
Á undanförnum misserum hefur mikill kraftur verið settur í þetta verk og Ragnar fylgdist með framvindu þess fram á síðasta dag, en hann lést 12. júlí 2008. Þeir Hafskipsmenn voru alla tíð staðráðnir í að brjóta þetta ótrúlega mál til mergjar og upplýsa um hinar raunverulegu staðreyndir þess. Afraksturinn er meðal annars kröfugerðin um opinbera rannsókn, stuðningur við verkefni tveggja sagnfræðinga sem gefið hafa út sitt hvora bókina um Hafskipsmálið og samantekt efnisins sem finna má á þessu vefsetri. Með þessu verki öllu er merkjumRagnars Kjartanssonar áfram haldið á lofti af þeim samhenta hópi Hafskipsmanna sem hann mun ávallt tilheyra.